Óvíst með Gylfa fyrir fallslaginn í kvöld

Gylfi Þór Sigurðsson glímir við meiðsli. stækka

Gylfi Þór Sigurðsson glímir við meiðsli. Reuters

Óvíst er hvort Gylfi Þór Sigurðsson nái að spila með Reading í Íslendinga- og fallslag gegn Plymouth í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Liðin sem bæði eru í fallsæti deildarinnar eigast við á Madejski leikvanginum í Reading.

Gylfi missti af sigurleik Reading í Doncaster á laugardaginn og Brian McDermott knattspyrnustjóri félagsins sagði við staðarblöðin í Reading að það yrði metið á síðustu stundu í dag hvort hann væri orðinn leikfær eða ekki.

Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru annars í leikmannahópi Reading og Kári Árnason verður örugglega í stöðu miðvarðar hjá Plymouth.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is