Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 9.2.2010
| 17:19
Terry fær frí til að skreppa til Dubai
Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri Chelsea staðfesti í dag að fyrirliðinn John Terry fengi frí um helgina en þá mætir Chelsea liði Cardiff í ensku bikarkeppninni.
Terry hefur jafnað sig af meiðslum í fæti og verður með sínum mönnum í leiknum gegn Everton á Goodison Park annað kvöld en eftir leikinn heldur hann til Dubai ásamt eiginkonu sinni, Toni.
Þar hyggst Terry reyna að bjarga hjónabandinu en eins og flestum ætti að vera kunnugt hefur verið upplýst um meint framhjáhald Terrys og fátt verið um annað rætt og ritað í breskum fjölmiðlum en bólfarir fyrirliðans utan hjónabandsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






