Terry þakklátur stuðningsmönnum Chelsea

John Terry þakkar fyrir sig á vellinum í leikslok. stækka

John Terry þakkar fyrir sig á vellinum í leikslok. Reuters

John Terry, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Chelsea, kveðst afar þakklátur stuðningsmönnum félagsins fyrir að sýna að þeir stæðu við bakið á sér í leik liðsins við Arsenal í úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Terry hefur látlaust verið í fréttunum undanfarna daga vegna meints framhjáhalds og mála því tengdu. Baulað hefur verið á hann þar sem Chelsea hefur spilað að undanförnu og Terry hefur verið sviptur stöðu landsliðsfyrirliða Englands.

„Ég vil koma á framfæri þakklæti til hvers einasta stuðningsmanns. Þetta var tilfinningaþrunginn dagur fyrir mig og það hefur verið hreint ótrúlegt hvernig stuðningsmenn félagsins hafa reynst mér undanfarnar tvær vikur. Ég átti ekki von á allir þessari hvatningu í dag og hver einasti á þakkir skildar. Þetta var stórkostlegt, og ég meina hvert orð sem ég segi," sagði Terry við Chelsea TV, sjónvarpsstöð félagsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is