Benítez: Of margir hlutir ekki í lagi

Rafael Benítez mátti horfa á sína menn tapa gegn Wigan …
Rafael Benítez mátti horfa á sína menn tapa gegn Wigan í fyrsta sinn í kvöld. Reuters

Rafael Benítez er örugglega ekki hátt skrifaður hjá stuðningsmönnum Liverpool eftir sögulegt tap liðsins gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Wigan gegn Liverpool í deildinni frá því liðið vann sér sæti á meðal þeirra bestu árið 2005.

,,Við lékum ekki vel og þá einkum í fyrri hálfleik.  Viðhorf leikmanna var ekki gott en menn tóku sig aðeins á í seinni hálfleik. Það vantaði klókindi í leik liðsins og það voru of margir hlutir sem voru ekki í lagi hjá okkur. Við verðum að sýna betri karakter ef okkur á að takast að enda á meðal fjögurra efstu,“ sagði Benítez eftir leikinn. 

Liverpool hefði með sigri náð fjórða sætinu í deildinni en liðið er í sjötta sæti, stig á eftir Tottenham og Manchester City sem hafa leikið færri leiki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert