Eiður Smári á bekknum gegn Blackburn

Eiður Smári Guðjhonsen í leik með Tottenham gegn Everton.
Eiður Smári Guðjhonsen í leik með Tottenham gegn Everton. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen er á meðal varamanna hjá Tottenham sem tekur á móti Blackburn Rovers í fyrsta leik dagsins af sjö sem fram fara í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leikur liðanna á White Hart Lane hefst klukkan 12.45.

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham teflir Roman Pavlyuchenko og Jermain Defoe fram í fremstu víglínu en til vara eru Peter Crouch og Eiður Smári, sem aðeins einu sinni hefur verið í byrjunarliði Tottenham frá því hann gekk í raðir félagsins frá Mónakó í janúar.

Lið Tottenham: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Assou-Ekotto, Kranjcar, Palacios, Modric, Bale, Pavlyuchenko, Defoe.

Varamenn: Alnwick, Kaboul, Crouch, Gudjohnsen, Rose, Walker, Livermore.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert