Eiður Smári áfram hjá Tottenham?

Eiður Smári fagnar marki
Eiður Smári fagnar marki Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen gæti hugsanlega orðið áfram í herbúðum Tottenham á næsta keppnistímabili því í lánssamningi hans er ákvæði um mögulega framlengingu á samningnum.

Þetta er haft eftir Eiði Smára á vefnum imscouting og að hann sé sáttur við þetta fyrirkomulag. „Þetta er nokkuð ljóst. Þetta var lánssamningur fyrir þetta tímabil með möguleika á að framlengja hann fyrir næsta tímabil. Hvort af því verður er ekki komið á hreint, báðir aðilar verða að samþykkja það, en ég er sáttur með þetta eins og það er,“ segir Eiður Smár við vefinn.

Hann segist kunna vel við sig hjá Tottenham þar sem hann hefur skorað tvö mörk það sem af er. „Ég kom hingað til að spila fótbolta, ekki til að horfa á fótboltaleiki. Það er alls ekki auðvelt að koma inn í lið á miðju tímabili, sérstaklega ekki lið sem er vel mannað og gengur vel í deild og bikar.“


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert