Fabregas tæpur en Gallas klár í slaginn

Arsene Wenger og Sol Campbell rölta á æfingasvæði Arsenal í morgun. stækka

Arsene Wenger og Sol Campbell rölta á æfingasvæði Arsenal í morgun. Reuters

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal greindi fréttamönnum frá því á Emirates Stadium í dag að það muni ekki koma í ljós fyrir en skömmu fyrir leik hvort Cesc Fabregas verði með liðinu gegn Barcelona en liðin eigast við í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

,,Hann æfði ekki með liðinu í morgun og sem stendur er hann ekki leikfær. Við munum gefa honum einn sólarhring til viðbótar en ég veit ekki hvort hann verði tilbúinn í slaginn. Ef leikurinn væri í dag þá myndi hann ekki spila,“ sagði Wenger en Fabregas meiddist í leiknum gegn Birmingham á laugardaginn.

Miðvörðurinn William Gallas hefur hins vegar náð sér af meiðslum en Frakkinn, sem hefur misst af síðustu átta leikjum liðsins, verður í leikmannahópnum á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is