Gerrard á leið til Real Madrid?

Steven Gerrard hefur leikið með Liverpool allan sinn feril. stækka

Steven Gerrard hefur leikið með Liverpool allan sinn feril. Reuters

Tvö helstu íþróttadagblöð Spánar, Marca og AS, segja að yfirgnæfandi líkur séu á því að Real Madrid kaupi Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, í sumar.

José Mourinho, sem var á dögunum ráðinn til spænska stórveldisins, reyndi tvívegis að kaupa Gerrard þegar hann var knattspyrnustjóri Chelsea.

Enskir miðlar gera því hinsvegar skóna að fréttir af væntanlegu brotthvarfi Rafaels Benítez frá Liverpool séu vísbending um að félagið ætli að gera allt sem það getur til að halda Gerrard í sínum röðum. Samskipti hans og Benítez hafi verið farin að kólna á lokaspretti nýliðins tímabils.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is