Cole sagður vilja fara til United

Samherjar hjá Manchester United? Joe Cole og Wayne Rooney á …
Samherjar hjá Manchester United? Joe Cole og Wayne Rooney á æfingu enska landsliðsins í gær. Reuters

Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole er sagður ætla að hafna tilboði frá Arsenal og ganga þess í stað til liðs við Manchester United en sem kunnugt er hefur Cole spilað sinn síðasta leik með Englands- og bikarmeisturum Chelsea.

Enska blaðið The Sun segir frá því að Cole hafi sagt vini sínum að hann vilji fara til Manchester United og sumir halda því fram að félagaskiptin séu þegar klár en það verði ekki tilkynnt um þau fyrr en þátttöku Englendinga á HM lýkur. 

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham segist hafa það á tilfinningunni að þegar sé þegar orðið ljóst að Cole fari til United en sjálfur hefur Redknapp haft áhuga á að fá enska landsliðsmanninn til liðs við sig. 



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert