Fulham hefur augastað á Eiði Smára

Eiður Smári fagnar marki með Tottenham.
Eiður Smári fagnar marki með Tottenham. Reuters

Fulham vill fá Eið Smára Guðjohnsen til liðs við sig fari svo að hann haldi ekki ekki kyrru fyrir hjá Tottenham. Eiður á tvö ár eftir af samningi sínum við Monaco en hann var í láni hjá Tottenham seinni hluta tímabilsins.

Að því er fram kemur í netútgáfu enska blaðsins The Mirror hefur Fulham augastað á Eiði þar sem ekki hefur fengist niðurstaða hvort hann verði áfram hjá Tottenham en stjórnarformaður Tottenham, Danil Levy, hefur ekki verið tilbúinn að gera nýjan samning við Eið. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur þó sagt að hann vilji halda Eiði og hann vill að Levy gangi frá þeim málum  sem allra fyrst.

Stoke og Blackburn eru einnig á höttunum eftir Eiði Smára, sem vill vera áfram hjá Tottenham en liðið vann sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert