Terry ekki með Englendingum

Félagarnir John Terry og Frank Lampard verða ekki með enska …
Félagarnir John Terry og Frank Lampard verða ekki með enska landsliðinu í næstu tveimur leikjum. Reuters

John Terry, fyrirliði Chelsea, getur ekki leikið men enska landsliðinu leikina gegn Sviss og Búlgaríu í undankeppni Evrópumótsins vegna meiðsla. Áður hafði félagi hans í Chelsea-liðinu, Frank Lampard, tilkynnt forföll þar sem hann þarf að fara í aðgerð vegna kviðslits.

Fleiri vandamál blasa við Fabio Capello landsliðsþjálfara Englendinga. Framherjarnir Peter Crouch og Bobby Zamora eru báðir tæpir vegna meiðsla en reiknað hefur verið með því að Capello myndi velja Zamora í landsliðshópinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert