Hodgson: Rétt að hvíla lykilmennina

Lucas Leiva þrumar boltanum í mark Rúmenanna í leiknum í kvöld. stækka

Lucas Leiva þrumar boltanum í mark Rúmenanna í leiknum í kvöld. Reuters

Roy Hodgson, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði að sitt lið hefði sýnt framá að það hefði verið rétt hjá sér að hvíla fjölda lykilmanna í leiknum gegn Steaua í Evrópudeild UEFA í kvöld. Liverpool vann samt stórsigur, 4:1, á Anfield.

David Ngog tók stöðu Fernando Torres í framlínunni og skoraði tvö mörk, Joe Cole lék með á ný eftir að hafa verið í leikbanni í síðustu deildaleikjum, og skoraði eftir 25 sekúndur, og þá gerði Lucas Leiva glæsimark.

„Ég var ekki í vafa, vegna þess hve margir landsliðsmenn eru í okkar hópi, að þetta væri rétta tækifærið til að hvíla þá. Þar með fengu þeir færi á að hvíla sig vel fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn," sagði Hodgson við BBC.

„Þeir sem komu inní liðið stóðu sig vel og náðu í góð úrslit, en ég tel að jafnvel þótt leikurinn hefði ekki endað eins vel, hefði verið rétt að gera þessar breytingar," sagði Hodgson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar


finnur.is