Hæpið að Fabregas verði með gegn Chelsea

Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas. Reuters

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir litla von um að spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas geti verið með í stórleiknum gegn Chelsea um næstu helgi.

Fabregas tognaði í læri í leiknum á móti Sunderland fyrir tíu dögum en hann er byrjaður að hlaupa og segir Wenger að ástand hans verði kannað þegar á vikuna líður en hann gerir sé ekki miklar vonir um að Fabregas geti spilað á sunnudaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert