Ferguson: Mun biðjast afsökunar

Wayne Rooney og Alex Ferguson.
Wayne Rooney og Alex Ferguson. Reuters

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Wayne Rooney muni biðja stuðningsmenn félagsins afsökunar á því fári sem hefur verið í kringum hann síðustu daga.

Rooney samþykkti í morgun að skrifa undir nýjan samning við félagið til fimm ára en fyrr í vikunni tilkynnti hann að hann vildi komast burt frá Manchester United.

„Wayne hefur beðið mig og leikmenn liðsins afsökunar. Hann mun gera slíkt hið sama gagnvart stuðningsmönnum okkar," sagði Ferguson um hádegið við Key 103, útvarpsstöð í Manchester.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert