Reiknar með Lampard gegn Liverpool

Frank Lampard hefur misst af 11 leikjum Chelsea.
Frank Lampard hefur misst af 11 leikjum Chelsea. Reuters

Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea, kveðst reikna með því að enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard verði orðinn leikfær fyrir sunnudaginn þegar lið hans sækir Liverpool heim á Anfield í úrvalsdeildinni.

Lampard hefur verið frá keppni undanfarnar vikur vegna nárameiðsla og misst af síðustu 11 leikjum meistaranna.

„Lampard hóf æfingar með liðinu í síðustu viku. Hann verður ekki tilbúinn á miðvikudag en ætti að ná næsta úrvalsdeildarleik, gegn Liverpool. Ég vonast svo sannarlega eftir því þar sem við þurfum á slíkum leikmanni að halda, hann er stórkostlegur leikmaður. Liðið hefur spjarað sig vel án hans en ég býst við því að hann fari beint í byrjunarliðið. Það er spilað þétt, leikur á þriggja daga fresti, svo allir okkar leikmenn taka þátt," sagði Ancelotti á  fréttamannafundi en lið hans mætir Spartak Moskva í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert