Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 6.12.2010
| 10:51
Slær United met í Meistaradeildinni?
Takist Manchester United að halda marki sínu gegn Valencia í Meistaradeildinni á Old Trafford annað kvöld slær liðið met en það verður þá í fyrsta skipti sem lið fer í gegnum riðlakeppnina án þess að fá á sig mark.
Manchester United og Valencia eru þegar búin að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United hefur 13 stig í fyrsta sæti en Valencia er með 10 í öðru sæti. Valencia á möguleika á að skáka United úr efsta sætinu og vinna riðilinn með því að leggja Manchester United að velli, 1:0. Þá yrðu liðin jöfn að stigum og jöfn staða í innbyrðisviðureignum en markatala spænska liðsins er mun betri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






