Vill Torres fara til Chelsea?

Fernando Torres fagnar marki fyrir Liverpool.
Fernando Torres fagnar marki fyrir Liverpool. reuters

Sky Sports segir að samkvæmt sínum heimildum hafi Fernando Torres beðið forráðamenn Liverpool um að endurskoða þá afstöðu sína að ekki komi til greina að selja hann til Englandsmeistara Chelsea.

Skýrt var frá því í morgun að Liverpool hefði hafnað tilboði Chelsea í Torres og talið er að það hafi numið 35 milljónum punda. Sky Sports segir að sérfræðingur stöðvarinnar í spænskum fótbolta, Guillem Balague, hafi heimildir fyrir því að Torres hafi beðið Liverpoolmenn um að hlusta á hvað Chelsea hafi fram að færa. Torres hafi áhuga á að takast á við nýja áskorun eftir hálft fjórða ár í röðum Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert