Eiður Smári ekki með Stoke

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. www.stokecityfc.com

Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Stoke sem tekur á móti Wolves í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar en flautað verður til leiks á klukkan 13. Eiður hefur átt við hálsmeiðsli að stríða en hann vill sem kunnugt er fara frá Stoke og hefur verið orðaður við hollensku liðin Ajax og PSV og í gær bárust af því fregnir að Feyenoord hefði áhuga á að fá hann í sínar raðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert