Hughes: Við erum ánægðir með Eið

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Reuters

Mark Hughes, knattspyrnustjóri Fulham, gaf til kynna í dag að hann hefði áhuga á að halda Eiði Smára Guðjohnsen hjá félaginu eftir að lánssamningur hans frá Stoke rennur út í vor.

„Við erum með Eið út þetta tímabil og erum ánægðir með hann. Það eru ýmis tækifæri fyrir hendi til vorsins og ef hann heldur áfram á sama hátt og hann hefur gert á æfingum hjá okkur, er ég viss um að viðræður fara í gang. Ég vissi að ég var að fá góðan leikmann, miðað við hans hæfileika og styrk sem ég hef séð hjá honum á undanförnum árum," sagði Hughes við Sky Sports.

„Það var aldrei nein áhætta fólgin í því að fá Eið. Málin gengu ekki upp hjá honum hjá síðasta félagi en ég er hæstánægður með að hafa fengið hann hingað. Hann hefur aukið gæðin í okkar hópi," sagði Mark Hughes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert