Kuyt ætlar að semja við Liverpool

Dirk Kuyt í leik með Liverpool.
Dirk Kuyt í leik með Liverpool. Reuters

Dirk Kuyt, hollenski knattspyrnumaðurinn, segir að hann sé langt kominn með að ganga frá nýjum samningi við Liverpool og framlengja enn dvöl sín þar en Kuyt hefur spilað með félaginu frá 2006.

Kuyt á enn hálft annað ár eftir af samningi sínum en sagði við The People í dag að viðræður væru í gangi um framlengingu og þær gengju vel.

„Ég er heima hjá mér í Liverpool og langar ekki að fara annað. Hér eru búnir að vera erfiðir tímar fyrir alla eftir þær breytingar sem hafa átt sér stað frá síðata sumri, en nú finn ég að það eru góðir hlutir að gerast. Ég tel að Liverpool sé á réttri leið á ný," sagði Kuyt, sem er þrítugur og hefur spilað 163 leiki fyrir félagið í úrvalsdeildinni en hann var keyptur á 9 milljónir punda frá Feyenoord.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert