Kenny fékk óvænta afmælisgjöf

Afmælisbarnið ásamt leikmönnum.
Afmælisbarnið ásamt leikmönnum. www.liverpoolfc.tv

Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool fékk áritaða treyju frá öllum leikmönnum liðsins í afmælisgjöf í dag en Dalglish fagnar í dag 60 ára afmæli sínu. Gjöfin kom Dalglish í opna skjöldu en eftir æfingu liðsins í morgun báðu leikmenn liðsins stjórann að hitta þá á liðsfundi og þegar Dalglish mætti í fundarherbergið fékk hann afhenta Liverpool treyju innrammaða með nafni sínu og númerinu 60 á bakinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert