Blackburn lagði United á Old Trafford

Yakubu skorar úr vítaspyrnu á Old Trafford í dag.
Yakubu skorar úr vítaspyrnu á Old Trafford í dag. Reuters

Botnlið Blackburn gerði sér lítið fyrir og lagði Englandsmeistara Manchester United, 3:2, og það á Old Trafford í fyrsta leik dagsins af sjö í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var fyrsti útisigur Blackburn á leiktíðinni og með tapinu missti United af möguleika á að skjótast í toppsætið á afmælisdegi Sir Alex Ferguson.

Fylgst var með leiknum í textalýsingu:

90. Leiknum er lokið með 3:2 sigri Blackburn.

80. MARK!! Blackburn hefur náð forystunni á ný. Grant Hanley skoraði með skalla af stuttu færi eftir mistök David De Gea markvarðar United.

62. MARK!! Englandsmeistararnir eru búnir að jafna metin. Dimitar Berbatov var aftur á ferðinni eftir sendingu frá Valencia. Fimmta mark Búlgarans í síðustu tveimur leikjum og gleymum því ekki að hann skoraði fimm mörk í 7:1 sigri gegn Blackburn í fyrra.

52. MARK!! Nú er fjör. Dimitar Berbatov var fljótur að minka muninn fyrir heimamenn. Hann skoraði með skalla af stuttu færi.

51. MARK!! Blackburn er komið í 2:0. Aftur var það Yakubu sem skoraði. Hann nýtti sér mistök í vörn United og setti boltann á milli fóta David De Gea.

46. Seinni hálfleikur er hafinn. Ferguson gerði breytingu á liði sínu. Anderson er kominn inná fyrir Javier Hernandez.

45. Hálfleikur á Old Trafford þar sem gestirnir eru óvænt yfir, 1:0, með marki frá Yakubu úr vítaspyrnu. Líklegt er að afmælisbarnið, Sir Alex, láti vel í sér heyra í leikhléinu enda eru strákarnir hans töluvert frá sínu besta.

15. MARK!! Blackburn er komið yfir. Yakubu skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnu sem dæmd var á Dimitar Berbatov fyrir að að toga Christopher Samba niður í vítateignum.

Man Utd: De Gea, Rafael Da Silva, Jones, Carrick, Evra, Nani, Valencia, Park, Welbeck, Hernandez, Berbatov. Varamenn: Lindegaard, Anderson, Diouf, Pogba, Will Keane, Fryers, Cole.

Blackburn: Bunn, Lowe, Samba, Hanley, Pedersen, Henley, Nzonzi, Petrovic, Rochina, Formica, Yakubu. Varamenn: Kean, Slew, Blackman, Goodwillie, Vukcevic, Morris, Linganzi.

Phil Jones og Yakubu í baráttunni.
Phil Jones og Yakubu í baráttunni. Reuters
Alex Ferguson hlýðir á afmælissönginn.
Alex Ferguson hlýðir á afmælissönginn. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert