Tveir frá United í liði ársins

Wayne Rooney. stækka

Wayne Rooney. Reuters

Tveir leikmenn frá Englandsmeisturum Manchester United voru valdir í lið ársins hjá FIFA en nú stendur yfir hátíð á vegum FIFA þar sem valdir verða bestu leikmenn heims í karla- og kvennaflokki, þjálfarar ársins, mark ársins og fleiri viðurkenningar. Lið ársins í karlaflokki kemur frá þremur félögum, Barcelona, Real Madrid og Manchester United.

Pep Guardiola var útnefndur þjálfari ársins en undir hans stjórn varð Barcelona Evrópu- og Spánarmeistari. Aðrir sem voru tilnefndir voru José Mourinho og sir Alex Ferguson, sem hlaut sérstök heiðursverðlaun.

Lið ársins er þannig skipað:

Iker Casillas, Real Madrid
Dani Alves, Barcelona
Gerard Pique, Barcelona
Sergio Ramos, Real Madrid
Nemanja Vidic, Manchester United
Andres Iniesta, Barcelona
Xabi Alonso, Real Madrid
Xavi, Barcelona
Lionel Messi, Barcelona
Cristiano Ronaldo, Real Madrid
Wayne Rooney, Manchester United

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is