Fellaini tryggði Everton sigur

Denis Stracqualursi fagnar marki sínu gegn Fulham í kvöld. stækka

Denis Stracqualursi fagnar marki sínu gegn Fulham í kvöld. Reuters

Hinn mjög svo hárprúði Marouane Fellaini frá Belgíu tryggði Everton farseðilinn í 5. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið hafði betur gegn Fulham, 2:1, á heimavelli sínum, Goodison Park.

Danny Murphy náði forystu fyrir Fulham með marki úr vítaspyrnu á 14. mínútu en argentínski framherjinn Denis Stracqualursi jafnaði metin fyrir Everton á 27. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Bandaríkjamannsins Landons Donovans og var það fyrsta mark Stracqualursi fyrir félagið.

Það var síðan á 73. mínútu sem Fellaini skoraði sigurmarkið með skalla og aftur var það Landon Donovan sem lagði upp markið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is