Ferdinand send byssukúla í pósti

John Terry og Anton Ferdinand. stækka

John Terry og Anton Ferdinand. Reuters

Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Antoni Ferdinand, miðverði QPR, hafi verið send byssukúla í pósti. Kúlan var send í höfuðstöðvar QPR á Loftus Road í umslagi sem merkt var Ferdinand.

Ferdinand og félagar hans í QPR mæta Chelsea í ensku bikarkeppninni á morgun og mætast þá Ferdinand og John Terry í fyrsta sinn frá því Ferdinand kærði Terry fyrir kynþáttarníð eftir leik liðanna í október.

Málið er enn til rannsóknar og á Terry að mæta fyrir dóm í næstu viku en hann hefur neitað ákærum Ferdinands.

Mikið hefur verið rætt og ritað um það hvort Terry og Ferdinand muni takast í hendur fyrir leikinn og sagði Mark Hughes, knattspyrnustjóri QPR, í dag að hann myndi ekki skipta sér af því. Það væri leikmannsins sjálfs að ákveða það.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar


finnur.is