Hughes ekki hættur að styrkja QPR

Samba Diakite númer 4 með Malí gegn Gíneu. stækka

Samba Diakite númer 4 með Malí gegn Gíneu. Reuters

Mark Hughes knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins QPR þar sem Heiðar Helguson er á meðal leikmanna, er enn tilbúinn að bæta við hóp sinn í janúar. Hughes er með Samba Diakite leikmann Nancy í siktinu en Diakite spilar á miðjunni.

Diakite sem er frá Malí á að fylla skarð Alejandro Faurlin sem verður frá vegna meiðsla út tímabilið. QPR er þó ekki eina liðið sem hefur áhuga á þessum leikmanni frá Mali sem er nú með landsliði sínu í Afríkukeppninni því franska liðið Lyon hefur einnig áhuga.

„Við erum að vonast til að ganga frá þessu,“ sagði Mark Hughes við enska fjölmiðla og bætti við; „Hann er leikmaður sem ég kann vel við og ég held að hann geti hjálpað okkur.“

Auk Diakite hefur QPR einnig áhuga á Christopher Samba leikmanni Blackburn sem vill fara frá félaginu. Tveimur tilboðum Lundúnarliðsins hefur hinsvegar verið hafnað. Hughes vildi ekki tjá sig um það hvort von væri á þriðja tilboðinu í leikmanninn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar


finnur.is