Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 27.1.2012
| 8:34
Kuyt vill slá bæði Manchester-liðin út
Dirk Kuyt framherji Liverpool segir að það yrði afar sætt fyrir liðið að slá bæði Manchester-liðin úr leik í vikunni. Í fyrradag sló Liverpool Manchester City úr leik í deildabikarnum og á í hádeginu á morgun tekur Liverpool á móti Manchester United í ensku bikarkeppninni.
,,Við erum meira en tilbúnir í leikinn á móti United og það yrði frábært að slá liðið út eins og við gerðum á móti Manchester City. Við verðum að leika af sama krafti og við gerðum á móti City og ég sannfærður um að svo verði. Við erum ánægðir að vera komnir á Wembley en við verðum að ýta þeim leik til hliðar því framundan er annar stórleikur,“ segir Kuyt.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






