Scholes: Saknaði fótboltans meira en ég hélt
Paul Scholes hefur viðurkennt að hann hafi saknað fótboltans meira en hann hélt eftir að hann ákvað að leggja skóna á hilluna í sumar. En Scholes sneri aftur inn í lið Manchester United öllum á óvart og hefur tekið þátt í þremur síðustu leikjum liðsins.
,,Ég saknaði fótboltans miklu meira en ég hélt. Undir lok síðustu leiktíð þá fannst mér að minn tími væri liðinn en þegar leikmenn sem hætta eru spurðir þá segjast þeir allir sakna fótboltans, alla vega í einhvern tíma. Ég saknaði þess að vera ekki með og ákvað að snúta til baka,“ sagði Scholes í viðtali við Manchester sjónvarpið.
,,Eftir að hafa mætt á æfingasvæðið síðustu þrjá til fjóra mánuðina og tekið smá þátt í æfingum varaliðsins þá saknaði ég þess að vera ekki í fótboltanum meira en ég hefði haldið. Ég fór og hitti stjórann og sagði honum að ég vildi byrja að spila aftur. Ég vissi ekki hvað hann myndi segja. Ég vissi ekki hver viðbrögð hans yrðu en sem betur fer voru þau jákvæð. Það er gott að vera kominn til baka,“ segir Scholes sem verður örugglega í leikmannahópi United þegar liðið mætir Liverpool í bikarnum á Anfield.






