Þetta verður toppurinn á ferlinum
„Maður er svona hægt og bítandi að komast niður á jörðina,“ sagði landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson við Morgunblaðið en framundan er stór stund á ferli hans því í næsta mánuði leikur hann með Cardiff í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar þar sem andstæðingurinn verður Liverpool.
„Hvorki Liverpool né Manchester City voru kannski óskamótherjinn enda öflug lið þar á ferðinni en ég vildi frekar fá Liverpool og mér varð að ósk minni,“ sagði Aron.
Spurður hvers vegna hann vildi frekar mæta Liverpool sagði Aron: „Ég tel að Manchester City sé mun sterkara lið en Liverpool og ég met möguleika okkar á móti Liverpool betri en ef við hefðum mætt City. Þá skemmir það ekki fyrir að margir í fjölskyldunni eru aðdáendur Liverpool,“ sagði Aron.
Sjálfur hefur Aron verið stuðningsmaður Manchester United frá unga aldri. „Ég er gallharður United-maður en mamma hefur haldið lengi með Manchester City og sagði okkur alltaf frá því þegar við strákarnir vorum að rífast um Manchester United og Liverpool.“
Aron segir að það verði mikil upplifun fyrir sig að fá að taka þátt í úrslitaleik á Wembley og mæta mönnum eins og Steven Gerrard en reikna má með að áhorfendur verði um 90.000.
„Þetta verður örugglega toppurinn á ferlinum og vitaskuld kemur fiðringur í magann þegar maður hugsar um leikinn. Fjölskyldan ætlar að fjölmenna út á leikinn en hún vill taka þátt í þessu sem maður er að gera og ég met það mikils.“
Sjá lengra viðtal við Aron í Morgunblaðinu í dag.






