Van der Vaart skaut Tottenham áfram

Rafael Van der Vaart er hér að skora sigurmarkið. stækka

Rafael Van der Vaart er hér að skora sigurmarkið. Reuters

Hollendingurinn Rafael van der Vaart skaut Tottenham áfram í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið bar sigurorð af B-deildarliðinu Watford á útivelli.

Van der Vaart skoraði markið á 42. mínútu með skoti sem markvörður Watford hefði átt að verja. Heimamenn veittu Lundúnaliðinu harða keppni allt til loka leiksins en lærisveinar Harrys Redknapps fögnuðu sigri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar


finnur.is