Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 27.1.2012
| 14:00
Wilshere ekkert með á tímabilinu?
Óvíst er hvort Jack Wilshere, miðjumaðurinn efnilegi, leiki nokkuð með Arsenal á leiktíðinni. Hann hefur verið frá keppni allt tímabilið vegna meiðsla í ökkla en ljós kom álagsbrot í ökklanum í sumar. Arsenal menn gerðu sér vonir um að geta teflt honum fram fljótlega en fregnir bárust að því í dag að afturkippur hafi komið í batann hjá enska landsliðsmanninum.
Wilshere hefur verið sárt saknað í Lundúnaliðinu á leiktíðinni og þá getur þetta sett strik í reikninginn varðandi þátttöku leikmannsins með Englendingum á Evrópumótinu í sumar.
,,Það varð afturkippur hjá honum en meiðslin eru til skoðunar svo ég get ekki sagt ykkur hversu lengi hann verður frá,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, við fréttamenn í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






