Chelsea fagnaði sigri á Loftus Road

Vinirnir Anton Ferdinand og John Terry í baráttunni á Loftus Road í dag. stækka

Vinirnir Anton Ferdinand og John Terry í baráttunni á Loftus Road í dag. Reuters

Chelsea er komið í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 1:0 sigur gegn QPR á Loftus Road í dag. Spænski landsliðsmaðurinn Juan Mata skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu sem þótti afar umdeildur dómur.

90. Leiknum er lokið með 1:0 sigri Chelsea.

76. Brasilíumaðurinn Ramires er borinn af velli. Hann er sárþjáður í fætinum og ekki annað að sjá en að meiðslin séu alvarleg.

62. MARK!! Chelsea er komið í 1:0. Juan Mata skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd var á Clint Hill fyrir brot á Daniel Sturridge. Strangur dómur að margra mati.

46. Heiðar Helguson var tekinn af velli í hálfleiknum vegna meiðsla og inná í hans stað kemur Ítalinn Federico Macheda sem er í láni frá Manchester United.

45. Það er kominn hálfleikur á Loftus Road. Staðan er 0:0.

35. Staðan er enn markalaus á Loftus Road. Nánast engin færi hafa litið dagsins ljós og það jafnræði með liðunum.

0. Enska knattspyrnusambandið tók þá ákvörðun að láta leikmenn ekki heilsast fyrir leikinn. Beiðni um þetta kom frá báðum félögum.

QPR: Kenny, Hill, Hall, Mackie, Buzsaky, Barton, Young, Smith, Helguson, Wright-Phillips, Ferdinand. Varamenn: Cerny, Orr, Derry, Hulse, Ephraim, Macheda, Onuoha.

Chelsea: Cech, Ivanovic, Cole, Luiz, Ramires, Torres, Mata, Malouda, Meireles, Sturridge, Terry. Varamenn: Turnbull, Essien, Romeu, Bosingwa, Lukaku, Cahill, Bertrand.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is