Dalglish: Sýndu mikla seiglu

Kenny Dalglish. stækka

Kenny Dalglish. Reuters

Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool brosti breitt eftir sigur sinna manna gegn Manchester United í bikarnum í dag. Dalglish skammaði lærisveina sína eftir tapleikinn gegn Bolton fyrir viku  og þær skammir virðast hafa gert gott því liðið hefur nú á nokkrum dögum slegið bæði Manchester-liðin út í bikarnum, United í bikarnum og City í deildabikarnum.

,,Leikmenn mínir sýndu mikla seiglu og hjartað var svo sannarlega á réttum stað. Dirk Kuyt skorað 50. mark sitt fyrir félagið og það var frábært að það skyldi koma í þessum leik og vera sigurmarkið. Mér fannst stuðningsmenn beggja liða haga sér vel og það var góð auglýsing fyrir viðkomandi lið,“ sagði Dalglish eftir leikinn.

,,Við sýndum og sönnuðum það í dag að við getum keppt við þá bestu,“ sagði Dirk Kuyt, hetja Liverpool, en í aðdraganda leiksins sagðist hann eiga sér þann draum að slá út bæði Manchester-liðin í vikunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is