Ferguson: Áttum þetta ekki skilið

Sir Alex Ferguson. stækka

Sir Alex Ferguson. Reuters

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var að vonum svekktur með niðurstöðuna á Anfield í dag en hans menn voru slegnir út af erkifjendunum í Liverpool í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar.

„Þetta var mikið áfall og við áttum þetta ekki skilið. Ég var ánægður með frammistöðu liðsins en í leikjum sem þessum getur allt gerst. Eitt upphlaup og mark,“ sagði Ferguson en Dirk Kuyt skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok.

Manchester United hefur unnið bikarinn oftast allra liða eða 11 sinnum en liðið hefur þó ekki hampað honum síðan árið 2004.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is