Liverpool sló Manchester United út úr bikarnum
Liverpool var að slá erkifjendur sína í liði Manchester United í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Dirk Kuyt tryggði Liverpool 2:1 sigur en hann skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Liverpool hefur þar með í sömu vikunni slegið út bæði Manchester-liðin í bikarnum en liðið sló City út í deildabikarnum.
90. Leiknum er lokið með 2:1 sigri Liverpool.
89. Berbatov kemur inná fyrir Giggs.
88. Minnstu munaði að Liverpool bætti þriðja markinu við. Carroll skallaði í slánna og Kuyt náði frákastinu en skaut framhjá.
87. MARK!! Liverpool er komið í 2:1. Dirk Kuyt skoraði með föstu skoti eftir skallasendingu frá Carroll.
77. Paul Scholes fer af velli í liði United og inná fyrir hann kemur Javier Hernandez, sem skoraði í leik liðanna í deildinni á Anfield en liðin skildu þá jöfn, 1:1.
72. Steven Gerrard fer af velli í liði Liverpool og Craig Bellamy leysir hann af hólmi. Dalglish er þar með búinn að nota alla varamenn sína.
63. Tvöföld skipting hjá Liverpool. Carragher og Maxi fara af velli og inná koma Kuyt og Adam.
57. Nú heimta leikmenn Liverpool. Chris Smalling féll við í eigin vítateig og boltinn rann í hönd Smallings en Halsey lét leikinn halda áfram. Minnstu munaði að mistök Smalling kostuðu United mark.
49. Manchester menn heimtuðu vítaspyrnu þegar boltinn fór í höndina á Skrtel innan vítateigs en Halsey dómari var ekkert á því að dæma vítaspyrnu.
45. Mark Halsey flautar til leikhlés á Anfield. Staðan er, 1:1, þar sem gestirnir frá Manchester United hafa verið heldur sterkari aðilinn.
38. MARK!! Kóreumaðurinn Park var að jafna metin fyrir Manchester United. Hann skoraði með föstu viðstöðulausu skoti eftir góða fyrirgjöf frá Rafael. Staðan, 1:1.
35. Staðan er 1:0 fyrir heimamenn. United mönnum hefur gengið illa að finna glufur á vel skipulagðri vörn Liverpool.
21. MARK!! Liverpool er komið í 1:0. Daniel Agger skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Spánverjinn í marki United leit ekki vel út. Hann komst ekki að boltanum og Daninn skallaði í netið.
18. Antonio Valencia var hársbreidd frá því að skora en skot hans small í stönginni.
4. David De Gea markvörður Manchester United gerði vel í að verja í horn.
Liverpool: Reina, Kelly, Enrique, Agger, Skrtel, Carragher, Henderson, Gerrard, Downing, Maxi, Carroll. Varamenn: Doni, Johnson, Coates, Kuyt, Adam, Shelvey, Bellamy.
Man Utd: Dea Gea, Da Silva, Smalling, Evans, Evra, Scholes, Carrick, Giggs, Valencia, Welbeck, Park. Varamenn: Lindegaard, Ferdinand, Berbatov, Hernandez, Fabio, Keane, Pogba.






