Stoke og Bolton komust áfram

Robert Huth innsiglaði sigur Stoke. stækka

Robert Huth innsiglaði sigur Stoke. Reuters

Úrvalsdeildarliðin Stoke, Bolton og Norwich voru meðal þeirra liða sem komust áfram í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu en níu leikjum var að ljúka.

Stoke hrósaði sigri gegn Derby á Pride Park, heimavelli Derby, 2:0, með mörkum frá Carome Jerome og Roberti Huth.

Bolton hafði betur á móti Swansea á Reebok, 2:1. Luke Moore kom Swansea yfir en þeir Darren Pratley og Chris Eagles svöruðu fyrir Bolton. Grétar Rafn Steinsson var ekki í leikmannahópi Bolton en Gylfi Þór Sigurðsson sat á bekknum allan tímann og mætir því vel úthvíldur þegar Swansea sækir Chelsea heim á þriðjudag í úrvalsdeildinni.

Simeon Jackson tryggði Norwich siguri gegn WBA á útivelli með marki skömmu fyrir leikslok. Norwich hafði betur í leiknum, 2:1.

Úrslitin urðu þessi:

Leicester - Swindon 2:0
Millwall - Southampton 1:1
Sheff. United - Birmingham 0:4
Stevenage - Notts County 1:0
Hull - Crawley Town 0:1
Blackpool - Sheff.Wednesday 1:1
Derby - Stoke 0:2
WBA - Norwich 1:2
Bolton - Swansea 2:1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is