United seldi Diouf til Hannover

Mame Biram Diouf. stækka

Mame Biram Diouf. Reuters

Þýska liðið Hannover gekk í dag frá kaupum á senegalska landsliðsmanninum Mame Biram Diouf frá Englandsmeisturum Manchester United. Samningur hans er til tveggja og hálfs árs.

United keypti Diouf frá norska liðinu Molde fyrir 4,5 milljónir evra, 730 milljónir króna, árið 2009 en hann náði ekki að setja mark sitt á lið United og margir tala um að Sir Alex hafi gert vond kaup. Þýska blaðið Bild segir að Hannover hafi reitt fram 1,8 milljónir evra fyrir framherjann sem jafngildir 292 milljónum króna.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar


finnur.is