Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 3.2.2012
| 14:57
| Uppfært
15:13
Baksviðs á leik Liverpool og United (myndskeið)
Stjórarnir Kenny Dalglish og Alex Ferguson fylgjast með sínum mönnum á Anfield um síðustu helgi. Reuters
Myndatökumenn frá Liverpool TV fengu aðgang í göngunum á Anfield fyrir stórleik Liverpool og Manchester United þegar liðin áttust við í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi. Í myndbandinu getur að líta hvað er gerast fyrir utan völlinn fyrir leikinn, í hálfleik og eftir leik.
Liverpool hrósaði sigri, 2:1, og sló þar með erkifjendur sína úr leik í bikarkeppninni en United fær gott tækifæri til að hefna ófaranna þegar liðið tekur á móti Liverpool í úrvalsdeildinni um næstu helgi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






