Ferguson: De Gea verður í fremstu röð
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að hinn spænski David de Gea eigi eftir að verða einn af bestu markvörðum heims og hefur ekki teljandi áhyggjur þó hann geri mistök af og til.
„Strákurinn er geysilega hæfileikaríkur, það er engin spurning. Hann hefur gert tvenn eða þrenn mistök, 21 árs gamall, en eftir tvö til þrjú ár verður engin slík umræða í gangi því þá verður hann orðinn þroskaðri. Þá verður hann farinn að nýta hæfileikana til fulls," sagði Ferguson á fréttamannafundi í dag en þá kvaðst hann ætla að tefla de Gea fram gegn Chelsea á sunnudaginn.
„Hann hefur verið í vandræðum með að laga sig að enska fótboltanum. Fyrra markið gegn Liverpool var gott dæmi um það. Hann komst ekki að boltanum. Okkar eigin leikmenn gerðu honum erfitt fyrir, því það voru of margir í kringum hann, svo hann fékk ekkert pláss til að athafna sig. Slíkt hefði aldrei hent hann á Spáni, svo það var erfið aðstaða.
Þegar markvörður United gerir mistök fer það í fréttirnar og stundum er það ýkt aðeins. En menn gera mistök og hann vill takast á við þau. Hann mun spjara sig með auknum þroska og skilningi á enska fótboltanum," sagði Ferguson.






