Ferguson: Hefði getað endað 20:18
Englandsmeistarar Manchester United endurheimta nokkra sterka leikmenn fyrir leik liðsins gegn Chelsea sem fram fer á Stamford Bridge á sunnudaginn. Einn þeirra sem snýr til baka í hópinn er miðjumaðurinn Tom Cleverley en hann hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðustu mánuðina.
Sir Alex Ferguson sagði á vikulegum fréttamannafundi í morgun að hann vonaðist til að Wayne Rooney, Nani, Tom Cleverley og Ashley Young yrðu allir í hópnum á sunnudaginn.
,,Það er ekki auðvelt að spila á Stamford. Við höfum ekki unnið Chelsea á þeirra heimavelli í deildinni síðan árið 2002. Við vonumst til að liðið verði í góðum gír eins og í leiknum á móti Arsenal og jafnvel í síðustu viku á Anfield en við áttum ekki skilið að tapa í þeim leik.
Fyrri leikurinn við Chelsea á Old Trafford var klikkaður. Hann hefði alveg getað endað 20:18, en ég held að leikurinn á sunnudaginn verði ekki þannig,“ sagði Ferguson.
Sir Alex sagði að spænski markvörðurinn David De Gea ætti að vera leikfær en Daninn Anders Lindegaard verður frá vegna ökklameiðsla næstu 4-5 vikurnar.






