Moyes: Ekki öruggt þó þú eyðir 50 milljónum
David Moyes knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Everton telur að þeir tveir leikmenn sem hann fékk undir lok félagaskiptagluggans í síðasta mánuði komi til með að hjálpa liðinu að enda tímabilið vel. „Við viljum enda vel og við höfum gert það undanfarin ár,“ sagði Moyes.
Everton fékk þá Nikica Jelavic frá Rangers og Steven Pienaar aftur til félagsins frá Tottenham á láni. Hann segir þó þurfa tíma. „Auðvitað vitum við ekki hvernig Nikica kemur til með að standa sig. Það er enginn knattspyrnustjóri í heiminum sem getur ábyrgst það að leikmaður sem hann kaupir muni spila vel. Þó hann borgi 50 eða 5 milljónir punda,“ sagði Moyes jafnframt.
Það eina sem Moyes getur vonað fyrir Jelavic er að reynsla hans í skosku deildinni hjálpi honum. Pienaar ætti að eiga auðveldara með að aðlagast þar sem hann naut bestu ára sinna á knattspyrnuvellinum í búningi Everton.
Þá sagði Moyes að það þyrfti ekki alltaf að eyða um efni fram til að styrkja liðið. „Við þurfum ekki alltaf peninga til að láta hlutinga gerast.“






