Stjarnan lögð að velli í Víkinni
Stjarnan hafði ekki erindi sem erfiði þegar liðið mætti í heimsókn í Víkina í kvöld. Liðin áttust við í 1. deild karla í handknattleik og fóru heimamenn í Víkingi upp fyrir Stjörnuna að stigum í deildinni með 33:27 sigri.
Staðan í hálfleik var þó ekki gæfuleg fyrir heimamenn eða 13:16. Varnarleikur þeirra var svo frábær í seinni hálfleik þar sem Stjarnan skoraði aðeins 11 mörk en heimamenn 20.
Hjálmar Þór Arnarson lék sinn fyrsta leik með Víkingum eftir nokkra fjarveru og stóð sig með prýði, skoraði 4 mörk og fiskaði tvö víti. Jóhann Reynir Gunnlaugsson skoraði 9 mörk og var markahæstur hjá Víkingi.
Hjá Stjörnunni voru Haraldur Þorvarðarson og Arnar Jón Agnarsson atkvæðamestir með sín hvor sjö mörkin.
Fjölnir og ÍR áttust einnig við og svo fór að topplið deildarinnar, ÍR, hafði nokkuð öruggan og þægilegan 10 marka sigur 32:22. Sigurður Magnússon var markahæstur hjá ÍR með 7 mörk en þeir Ólafur Sigurgeirsson og Hrannar Máni Gestsson skoruðu 5 mörk hvor. Grétar Eiríksson og Arnar Guðmundsson skoruðu mest fyrir Fjölni eða 4 mörk hvor.
Staða liðanna:
ÍR, 20 stig, 12 leikir
Víkingur, 15 stig, 12 leikir
ÍBV, 14 stig, 11 leikir
Stjarnan 14 stig, 12 leikir
Selfoss 7 stig, 11 leikir
Fjölnir 0 stig, 12 leikir.






