Tévez á leikmannalista City
Carlos Tévez gæti leikið með Manchester City á lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu því þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er hann á 25 manna leikmannalista sem félagið skilaði inn til deildarinnar í dag.
Þar með er hann gjaldgengur í liðið þrátt fyrir að hafa verið úti í kuldanum síðan í september, þegar hann neitaði að fara inná í leik í Meistaradeild Evrópu, og þrátt fyrir að hafa dvalið í Argentínu síðan nokkru fyrir jól. Ekkert varð af því að hann yrði seldur frá félaginu í janúar eins og reiknað hafði verið með.
„Carlos er ekki inni í myndinni sem stendur en gæti komið til greina í liðið ef hann kemur aftur. Ég vona hans vegna að hann hafi haldið sér í formi undanfarna þrjá mánuði. Ég hugsa bara um okkur og úrvalsdeildina. En ef hann kemur aftur og er leikfær er allt mögulegt,“ sagði knattspyrnustjórinn Roberto Mancini við fréttamenn í dag.






