Wenger vill þagga niður í mótmælendum
Arséne Wenger knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal vill þagga niður í stuðningsmönnum sem hyggjast mótmæla lélegu gengi liðsins á næsta heimaleik. Það vill hann gera með því að sýna þeim betri frammistöðu á vellinum.
Mótmælin eru fólgin í því að áhorfendur komi með svarta ruslapoka á völlinn og breiði yfir auð sæti á Emirates-leikvanginum sem fer víst sífellt fjölgandi. Sætin eru rauð og falla vel inn í áhorfandaskarann þegar þau eru auð þar sem flestir mæta í rauðum Arsenal-treyjum á völlinn.
Wenger hafði eftirfarandi að segja um fyrirhuguð mótmæli. „Ég held að við verðum að vera meiri menn og sýna betri frammistöðu á vellinum í stað þess að svara hverri ögrun.“
Þá sagði hann því miður ekki alla bregðast eins við þegar illa gengi og benti á um leið að Arsenal hefði spilað í 15 ár samfleytt í Meistaradeildinni og væri á þessu tímabili komið í 16-liða úrslit keppninnar.
„Ef allt væri eins og ég vildi hafa það væru allir ánægðir. En við lifum í heimi þar sem ekki allir bregðast eins við.“






