Wilkins gagnrýnir ákvörðun enska sambandsins

John Terry þarf ekki lengur að laga fyrirliðabandið. stækka

John Terry þarf ekki lengur að laga fyrirliðabandið. Reuters

Ray Wilkins fyrrverandi aðstoðarknattspyrnustjóri og þjálfari hjá Chelsea gagnrýnir enska knattspyrnusambandið harðlega fyrir þá ákvörðun sína að svipta John Terry fyrirliðabandinu hjá landsliðinu. Nánar umfjöllun um það hér.

Wilkins sem þekkir Terry vel segir að hann verði mjög vonsvikinn vegna afstöðu sambandsins og verði mjög sár yfir þeim ráðahag. Þá telur hann sambandið taka illa á málinu sérstaklega í ljósi þess að Fabio Capello landsliðsþjálfari má enn velja hann í hópinn.

„Mér finnst það rangt, ef þú tekur fyrirliðabandið af leikmanni þá á hann ekki að vera hluti af hópnum. Hvort sem hann er með fyrirliðabandið eða ekki verður John alltaf áhrifamikill.“

Wilkins var ekki skemmt yfir fréttunum: „Ég er sorgmæddur yfir þessu, verð ég að segja. Það er eins og sé búið að dæma hann sekan, sem er alls ekki svo. Ég er ótrúlega vonsvikinn fyrir hönd Johns.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is