Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 4.2.2012
| 22:47
| Uppfært
5.2.2012
17:25
Frimpong borinn meiddur af velli
Emmanuel Frimpong, miðjumaður Úlfanna sem er í láni frá Arsenal, var borinn af velli eftir aðeins 24 mínútna leik gegn QPR í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og óttast er að hnémeiðsli hans séu alvarleg.
Mick McCarthy, knattspyrnustjóri Wolves, kvaðst ekkert geta sagt um meiðslin eftir leikinn þar sem beðið væri eftir niðurstöðum úr myndatökum. Þetta var fimmti leikur Frimpongs með Úlfunum síðan hann kom til þeirra um áramótin og í annað sinn sem hann þarf að fara meiddur af velli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






