Gylfi fékk 9 í einkunn hjá Sky

Gylfi Þór Sigurðsson. stækka

Gylfi Þór Sigurðsson. www.swanseacity.net

Gylfi Þór Sigurðsson fær mikið lof í enskum miðlum eftir frammistöðu sína með Swansea í sigrinum á WBA í dag þar sem hann skoraði sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni og lagði upp sigurmarkið.

Gylfi var maður leiksins að flestra mati, meðal annars hjá fréttastofu Sky og goal.com, og fékk hann 9 í einkunn hjá Sky og 8 hjá goal.com. Í umsögn Sky segir að Gylfi hafi kórónað magnaða frammistöðu með marki og stoðsendingu.

Lesendur Sky geta einnig gefið leikmönnum einkunn og þeir virðast jafnvel enn hrifnari af frammistöðu Gylfa en hann er nú með 9,6 að meðaltali í einkunn hjá lesendum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is