Man. City með þriggja stiga forskot á ný
Manchester City náði sér í þriggja stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á ný með öruggum 3:0-sigri á Fulham í dag. Manchester United getur jafnað granna sína að stigum með sigri á Chelsea í Lundúnum á morgun.
Sergio Agüero kom City yfir með marki úr víti sem Adam Johnson fiskaði og Johnson átti svo heiðurinn af sjálfsmarki Chris Bairds skömmu síðar. Edin Dzeko innsiglaði sigurinn eftir frábæran undirbúning hjá Agüero.
Fulham er áfram í 14. sæti, sjö stigum frá fallsæti.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
78. Fulham var nálægt því að minnka muninn en boltinn fór af Edin Dzeko í stöngina eftir hornspyrnu.
73. MARK! Heimamenn komust í 3:0 með marki Edin Dzeko sem skaut úr góðu færi í teignum eftir listilegan undirbúning Sergio Agüero.
60. Stutt hlé á leiknum var á meðan vallarstarfsmenn skófu snjó af vítateigslínum að ósk dómara. Enn snjóar duglega í Manchester og aðstæður ekki góðar.
45. Hálfleikur. Fulham er ekki líklegt til að ógna sigri toppliðsins sem nær þriggja stiga forskoti á Manchester United með sigri. United sækir Chelsea heim á morgun.
32. Man. City hefði með réttu átt að fá vítaspyrnu þegar Dickson Etuhu virtist svo sannarlega brjóta á David Silva en ekkert var dæmt.
30. MARK! Adam Johnson fékk boltann hægra megin við markteiginn og spyrnti fyrir markið en boltinn fór af Chris Baird og í markið. Ekki gaman að vera Baird í dag því hann braut af sér þegar vítið var dæmt.
10. MARK! Heimamenn komust í 1:0 með marki Sergio Agüero úr vítaspyrnu sem Adam Johnson krækti í. Schwarzer valdi rétt horn en spyrnan var góð hjá Agüero.
0. Fyrirliðinn Vincent Kompany gat ekki leikið með Man. City í dag vegna meiðsla. Það er kalt í veðri í Manchester og snjókoma.
Man. City: Hart, Lescott, Richards, Savic, Kolarov, Barry, Silva, Johnson, Nasri, Aguero, Dzeko.
Varamenn: Pantilimon, Clichy, Zabaleta, de Jong, Milner, Pizarro, Rekik.
Fulham: Schwarzer, Kelly, Hangeland, Senderos, Baird, Murphy, Etuhu, Davies, Duff, Dembele, Dempsey.
Varamenn: Stockdale, J A Riise, Hughes, Gecov, Frei, Kasami, Ruiz.






