Van Persie með þrennu í sex marka sigri

Alex Oxlade-Chamberlain og Robin van Persie fagna einu markanna í dag. stækka

Alex Oxlade-Chamberlain og Robin van Persie fagna einu markanna í dag. Reuters

Arsenal hristi heldur betur af sér slenið eftir fjóra leiki í röð án sigurs og gjörsamlega valtaði yfir Blackburn í dag, 7:1. Robin van Persie skoraði þrennu, Alex Oxlade-Chamberlain tvennu, og þeir Mikel Arteta og Thierry Henry sitt markið hvor.

Blackburn missti Gael Givet af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik en þá var staðan þegar orðin 3:1. Morten Gamst Pedersen skoraði mark Blackburn þegar hann jafnaði metin úr glæsilegri aukaspyrnu.

Arsenal komst með sigrinum upp fyrir Liverpool og Newcastle í 5. sætið en Blackburn er áfram í fallsæti.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

90.+3 MARK! Robin van Persie og Thierry Henry sluppu tveir saman í skyndisókn og léku boltanum vel á milli sín áður en Henry skoraði og fullkomnaði sex marka sigur, 7:1.

62. MARK! Arsenal-menn leika sér að því að skora. Coquelin átti góða fyrirgjöf á Robin van Persie sem fullkomnaði þrennuna sína og kom Arsenal í 6:1.

54. MARK! Theo Walcott lék sér með boltann í teignum og kom honum til vinstri á Alex Oxlade-Chamberlain sem skoraði í nærhornið sitt annað mark. Staðan því 5:1.

52. MARK! Veislan heldur áfram í seinni hálfleiknum. Mikel Arteta átti viðstöðulaust skot úr vítateigsboganum í kjölfar hornspyrnu og kom Arsenal í 4:1.

45. Thomas Vermaelen var hársbreidd frá því að skora þegar hann spyrnti boltanum í stöng af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Mikel Arteta.

42. RAUTT! Blackburn missti Gael Givet af velli með rautt spjald eftir glæfralega tveggja fóta tæklingu á Robin van Persie. Hafi útlitið verið dökkt hjá gestunum er það kolsvart núna.

40. MARK! Eftir að hafa skorað tvö mörk átti Robin van Persie stoðsendingu á Alex Oxlade-Chamberlain sem fór auðveldlega framhjá Paul Robinson markverði og skoraði í autt markið. Fyrsta deildarmark þessa efnilega leikmanns fyrir Arsenal.

38. MARK! Arsenal var ekki lengi að ná forystunni á nýjan leik. Markið var keimlíkt því fyrra, Alex Song átti frábæra stungusendingu í gegnum vörnina hægra megin á Theo Walcott sem spyrnti boltanum fyrir markið á Robin van Persie sem skoraði af stuttu færi. Hann er þá kominn með 21 mark í deildinni!

32. MARK! Blackburn jafnaði metin, 1:1, úr aukaspyrnu nokkrum metrum utan vítateigsbogans. Morten Gamst Pedersen tók spyrnuna og skaut glæsilega yfir varnarvegginn og upp í vinstra markhornið. Sczcesny náði að snerta boltann en það dugði ekki til.

25. Arsenal hefur verið nær því að bæta við marki og nú skapaðist hætta þegar Mertesacker skallaði boltann eftir hornspyrnu en knötturinn endaði ofan á þaknetinu.

2. MARK! Robin van Persie var ekki lengi að koma boltanum í netið. Hann skoraði auðveldlega af stuttu færi eftir sendingu Theo Walcott frá hægri þvert fyrir markið. Bent er á markatölfræði Hollendingsins hér að neðan, en þetta er jafnframt 100. mark hans í deildakeppni fyrir Feyenoord og Arsenal.

0. Robin van Persie er fremstur hjá Arsenal. Van Persie hefur skorað átta mörk gegn Blackburn í deildinni, þremur meira en gegn nokkru öðru liði, og 10 mörk í 12 leikjum í öllum keppnum gegn liðinu. Það má því búast við mörkum frá kappanum sem er kominn með 19 mörk og getur orðið fjórði leikmaðurinn til að skora 20 mörk í deildinni fyrir Arsenal á einni leiktíð. Thierry Henry, Ian Wright og Emmanuel Adebayor hafa áður náð því.

Arsenal: Szczesny, Coquelin, Mertesacker, Koscielny, Vermaelen, Song, Arteta, Rosicky, Oxlade-Chamberlain, Walcott, Van Persie.
Varamenn: Fabianski, Sagna, Ramsey, Benayoun, Arshavin, Henry, Park.

Blackburn: Robinson, Lowe, Dann, Givet, Martin Olsson, Hoilett, Petrovic, Nzonzi, Dunn, Pedersen, Modeste.
Varamenn: Bunn, Formica, Orr, Rochina, Goodwillie, Vukcevic, Hanley.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is