Vill að Evra heilsi Suárez

Luis Suárez og Patrice Evra mætast eftir viku. stækka

Luis Suárez og Patrice Evra mætast eftir viku. Reuters

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, gaf til kynna á fréttamannafundi sínum í gær að hann vildi að Patrice Evra tæki í hönd Luis Suárez fyrir leikinn gegn Liverpool um næstu helgi og lyki þar með máli leikmannanna tveggja.

Suárez hefur lokið afplánun átta leikja banns fyrir kynþáttaníð í garð Evra og spilar væntanlega með Liverpool gegn Tottenham á mánudaginn. Liverpool og United mætast síðan á laugardaginn kemur, á Old Trafford, í úrvalsdeildinni.

„Evra ætti að fá hrós fyrir sinn þátt í málinu og að standa við sín orð. Hann þarf ekkert að skammast sín. Þetta mál er búið, og hann getur lokið því með stolti,“ sagði Ferguson á fréttamannafundi sínum í gær og átti þar við að Evra ætti ekki að hunsa handaband við Suárez.

Evra fékk að heyra það óspart frá stuðningsmönnum Liverpool þegar liðin mættust í bikarkeppninni á Anfield á laugardaginn. Hann var kallaður lygari í söngvum Liverpoolmanna og einn þeirra var handtekinn fyrir að sýna tilburði til kynþáttaníðs.

„Honum fannst þetta ekki gaman, held ég, en hann komst vel frá því. Patrice hefur sýnt mikið hugrekki svo hann þarf ekki að skammast sín. Handaband þeirra á milli á ekki að vera vandamál,“ sagði Ferguson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is